- Stýrivextir lækkaðir


Peningastefnunefnd hefur ákveðið að lækka stýrivexti Seðlabanka Íslands um 1,0
prósentu í 17,0%. Aðrir vextir Seðlabankans verða einnig lækkaðir í sama mæli.
Klukkan 11 í dag verður kynningar­fundur bankans af þessu tilefni sendur út á
vef bankans jafnframt því sem birt verða nánari rök fyrir ákvörðun
peningastefnunefndar.