Icelandair hefur beint áætlunarflug til Seattle í Bandaríkjunum


Icelandair, dótturfélag Icelandair Group, mun hefja beint áætlunarflug fjórum
sinnum í viku milli Íslands og Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna þann 22.
júlí næstkomandi. 

•   Viðskiptatækifæri sem gefst vegna breytinga á alþjóðamörkuðum 
•   Fellur inn í leiðakerfi sem byggir á legu landsins í beinni flugleið milli
Norður-    Ameríku og Norður-Evrópu 
•   Hagkvæmar Boeing 757 þotur Icelandair henta einstaklega vel í flugið
•   Skapar gjaldeyristekjur, allt að eitt hundrað atvinnutækifæra og eflir 
ferðaþjónustuna 

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair:

“Icelandair rekur öflugt leiðakerfi og velgengi þess byggir á stöðugri
útsjónarsemi, þróun og aðhaldi. Við brotthvarf SAS af markaðinum milli
Skandinavíu og Seattle í sumar myndast tækifæri fyrir Icelandair, því vegna
staðsetningar landsins getum við nýtt Boeing 757 þotur í flugið, en þær eru mun
hagkvæmari en þær breiðþotur sem jafnan fljúga milli Seattle og Evrópu. Með
millilendingu hér á landi dreifast farþegar til og frá fjölmörgum Evrópuborgum,
líkt og í öðru tengiflugi félagsins. Samkeppnishæfni Icelandair á leiðinni
milli Seattle og Evrópu er því góð og við getum boðið 3-4 klst. styttri
flugtíma en aðrir geta frá höfuðborgum Norðurlandanna og fleiri stöðum.
Jafnframt erum við í samstarfi við Alaska Airlines, sem er stærsta flugfélagið
í Seattle, og því bjóðum við samdægurs góðar áframtengingar til borga eins og
Las Vegas, Los Angeles, San Francisco og fleiri. 

Þetta flug undirstrikar styrk og sveigjanleika Icelandair. Með starfsemi á
fjölmörgum mörkuðum í Evrópu og Norður-Ameríku heldur Icelandair uppi öflugum
samgöngum milli Íslands og umheimsins jafnvel þó dragi mjög úr utanferðum
Íslendinga tímabundið. Við störfum í raun á þremur ólíkum mörkuðum,
heimamarkaði á Íslandi, ferðamannamarkaði til Íslands og alþjóðamarkaðinum
milli Evrópu og Norður-Ameríku. Við núverandi efnahagsaðstæður eru áherslurnar
á að fá ferðamenn til landsins og á þátttöku í alþjóðafluginu. Farþegarnir í
Seattlefluginu koma langflestir af alþjóðamarkaði. Við gerum ráð fyrir að
aðeins um 7% farþeganna verði Íslendingar, en um 93% verða útlendingar - að
hluta ferðamenn til Íslands og að hluta fólk á ferð milli heimsálfa. 

Nú eru almennt erfiðir tímar í alþjóðaflugi, en Icelandair hefur áður synt gegn
straumnum. Eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 dró mjög úr eftirspurn
í flugi, en Icelandair greip tækifæri sem gáfust og á árinu 2002 náði félagið
sínum besta rekstrarárangri á meðan önnur flugfélög börðust í bökkum.
Icelandair gerði á fyrri hluta síðasta árs umtalsverðar hagræðingaraðgerðir í
ljósi versnandi efnahagsástands og við fall íslensku bankanna breytti félagið
um áherslur í sölustarfi sínu. Bættur kostnaðarastrúktúr skapar sóknarfæri og
afkoma fyrstu mánuði ársins er betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstur
Icelandair er því traustur. 

Það er sérstakt ánægjuefni að þessi ákvörðun kallar á aukna starfskrafta í
fluginu og við gerum ráð fyrir að með því skapist beinn starfsvettvangur fyrir
allt að eitt hundrað starfsmanna auk þess sem aukin ferðamannastraumur til
Íslands skapar mikilvæg störf um allt land. Þar að auki er Seattle mjög
aðlaðandi borg og skemmtileg heim að sækja, auk þess sem hún er systurborg
Reykjavíkur” 


Flogið verður fjórum sinnum í viku, frá Íslandi á mánudögum, miðvikudögum,
föstudögum og laugardögum, brottför kl 17.00 og koma til Seattle kl 16.45. Frá
Seattle verður flogið á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum,
brottför kl 15:30 og koma til Íslands kl. 06:45 

Icelandair á sér 72 ára sögu og fá alþjóðleg flugfélög eiga sér jafn langa hefð
í flugi milli Evrópu og Norður-Ameríku. Nú býður félagið viðskiptavinum sínum
frábæra þjónustu á þremur farrýmum, Saga Class, Economy Comfort og Economy, en
í þotunum eru ný sæti og afþreyingarkerfi fyrir hvern og einn. Félagið hefur
verið þáttakandi í IATA frá 1950, í AEA frá 1957 og í Flight Safety Foundation
frá 1966

Attachments

seattle_isl_25_03_09.doc