- Ársreikningur 2008


Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2008

Ársreikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla
(IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á reikningsárinu. 

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2008 var staðfestur af stjórn félagsins
í dag, 31. mars 2009. 

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess.
Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á
vettvangi sveitarfélaga. 

Tap félagsins á árinu 2008 var 74.357 þús. kr. og í lok þess var eigið fé
neikvætt um sem nam 61.437 þús. kr. samkvæmt ársreikningi. Ástæða fyrir þessu
tapi má rekja til mikils  fjármagnskostnaðar og of lágrar húsaleigu. Stjórnin
mun leggja það til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið um 38
milljónir. 
 
Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með
fyrirvara. 

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir
afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána 512,8 millj.
kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á
greiðslu lánanna. 

Ásgeir Valdimarsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari
upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.

Attachments

jeratun ehf  2008.pdf frettatilkynning og lykiltolur jeratun 2008.pdf