- Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar haldinn 2. apríl sl.


Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 2. apríl, var skýrsla stjórnar og
ársreikningur fyrir árið 2008 samþykkt samhljóða. 

Sjálfkjörið var í félagsstjórn.

Formaður félagsstjórnar:
Bragi Hannesson

Meðstjórnendur:
Árni Vilhjálmsson
Jón Guðmann Pétursson
Kristján Loftsson 
Sigurgeir Guðmannsson 

Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar samhljóða:  

1.  Tillaga um greiðslu arðs.

    Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að hagnaður rekstrarársins 2008
    leggist óskertur við eigið fé félagsins. 

2.  Tillaga um þóknanir fyrir liðið starfsár.

    Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að þóknun til stjórnarmanna fyrir
    liðið ár verði kr. 600.000, formaður taki þrefaldan hlut. 

3.  Tillaga um endurskoðunarfélag.

    Aðalfundur Hampiðjunnar hf. kýs PricewaterhouseCoopers hf.
    endurskoðunarfélag félagsins. 

4.  Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.

    Aðalfundur Hampiðjunnar hf. veitir stjórn félagsins heimild til þess að
    kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi standi í 18 mánuði og
    takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé
    félagsins á hverjum tíma. 
    Kaupverð hluta skal vera hæst 15% yfir síðasta þekktu söluverði á First
    North markaðinum áður en kaup eru gerð.