- Fjárhagsleg endurskipulagning Askar Capital


Þann 17. mars gekk skilanefnd Glitnis að veðum í öllu hlutafé í Moderna Finance
AB, móðurfélagi Askar Capital.  Með þessu færðust yfirráð yfir Askar Capital
til skilanefndar Glitnis. 

Eiginfjárhlutfall Askar Capital er nú undir lögbundnu 8% lágmarki og hefur
félagið frest frá Fjármálaeftirlitinu til að koma eiginfjárhlutfallinu í
lögbundið horf.  Unnið er að lausn málsins með nýjum eiganda bankans,
skilanefnd Glitnis, og öðrum kröfuhöfum. 

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Árnason, forstjóri, í síma 665 8859.