Hluthafafundur Teymis hf. var haldinn á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 18, Reykjavík, mánudaginn 20. apríl 2009. Á fundinum voru samþykktar eftirfarandi tillögur: 1. Fallist var á að leita nauðasamnings við kröfuhafa félagsins til þess að ráða bót á fjárhagslegri stöðu þess og forða félaginu frá gjaldþroti. 2. Fallist var á að hlutafé félagsins yrði lækkað að fullu, þ.e. úr kr. 3.048.937.613 í kr. 0, til að mæta því tapi sem orðið hefur á rekstri félagsins undanfarna mánuði. Þá var samþykkt að að hlutafé félagsins verði hækkað um kr. 4.000.000, að nafnverði á genginu 1,0. Hluthafar félagsins féllu frá forkaupsrétti sínum að hækkuninni, en Endir ehf., kt. 460309-0690, Suðurlandsbraut 18, Reykjavík, og Botni ehf., kt. 460309-8500, s.st., skrifuðu sig fyrir allri hlutafjárhækkuninni. Á fundinum var lögð fram breytingartillaga stjórnar þar sem lagt var til að eftirfarandi málsliðir upprunalegrar tillögu um hlutafjárhækkun yrðu felldir á brott: "Endir ehf. og Botn ehf. skulu skuldbinda sig til þess að selja núverandi hluthöfum Teymis hf. af hlutafé sínu í félaginu, ef til kemur, á genginu 1.0, hlutafé sem svarar samanlagt til sömu hludeildar í heildarhlutafjáreign þeirra í Teymi hf. lækkun hlutafjár á hluthafafundi 20. apríl 2009. Núverandi hluthafar í Teymi hf. skulu neyta kaupréttar samkvæmt þessu ákvæði, ef þeir óska, fyrir 1. Júní 2009" Stjórnin greindi frá því að í ljósi þess að drög að nauðasamningi fyrir félagið gerðu ráð fyrir að framangreint hlutafé yrði fært niður að fullu, færi svo að kröfuhafar félagsins samþykktu að umbreyta kröfum í hlutafé, væri ekki sanngjarnt gagnvart hluthöfum að bjóða þeim að leggja frekara fé til félagsins. Var tillagan samþykkt með framangreindum breytingum. 3. Fallist var á að fella niður heimildir stjórnar til hækkunar hlutafjár skv. gr. 2.01.2 og gr. 2.01.3. 4. Fallist var á að grein 5.01. í samþykktum félagins væri breytt, þannig að stjórn félagsins skuli skipuð þremur mönnum kjörnum á hluthafafundi til eins árs í senn. Þá fór fram stjórnarkjör á fundinum. Í stjórn félagsins voru kjörnir: Gunnar Þór Ásgeirsson Kristinn Hallgrímsson Lúðvík Örn Steinarsson
Niðurstöður hluthafafundar 20. apríl 2009
| Source: Teymi hf.