- Ársreikningur 2008


Starfsemi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) einkenndist af einstaklega erfiðum
ytri aðstæðum á árinu 2008. Hamfarir á fjármálamörkuðum setja mark sitt á
afkomu félagsins. Tap vegna norska dótturfélagsins NEMI Forsikring ASA (Nemi),
sem nú hefur verið selt, nam 12,1 milljarði króna og tap vegna innlendrar
starfsemi TM nam 5,5 milljörðum króna. Heildartap ársins nam því 17,6
milljörðum króna. Þrátt fyrir afar erfiðar rekstraraðstæður á árinu 2008 er
fjárhagsstaða TM sterk og eignir á móti vátryggingaskuld (bótasjóður) traustar.
Eftir söluna á Nemi er eiginfjárhlutfall TM 31,2%. 

Mikið tap vegna Nemi
Heildartap vegna starfsemi og sölu norska dótturfélagsins Nemi nam 12,1
milljarði króna á árinu 2008. Nemi, sem TM keypti árið 2006, var rekið með
miklum halla og tapaði félagið meira en helmingi eigin fjár á rekstrarárinu eða
um 3,8 milljörðum kr. Erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum ásamt hækkandi
stálverði og öðrum kostnaði tengdum tjónum í skipatryggingum, skýra þetta mikla
tap. Nemi var sett í sölumeðferð s.l. haust og selt í mars 2009. Tekið hefur
verið tillit til 8,2 milljarða króna taps vegna sölu Nemi í reikningum
félagsins fyrir árið 2008. 

Umtalsverð hækkun tjónakostnaðar
Hagnaður vegna innlendrar vátryggingastarfsemi TM á árinu 2008 nam 166
milljónum króna. Eigin iðgjöld ársins voru tæpir 9 milljarðar kr. og jukust um
tæp 20% á milli ára. Eigin tjónakostnaður jókst um 32% á milli ára og nam um
9,4 milljörðum kr. Tjónakostnaður í eigin hlut var 393 m.kr. hærri en iðgjöld
félagsins og var eigið tjónshlutfall félagsins 104,4%. Mikil verðbólga samfara
auknum kostnaði vegna ökutækja- og eignatjóna skýra að stærstum hluta
óviðunandi afkomu af vátryggingarekstri á Íslandi. Viðsnúningur varð hins vegar
í afkomu af slysatryggingum sjómanna frá fyrra ári. 

Tap af innlendri fjárfestingastarfsemi
Tap af innlendri fjárfestingastarfsemi TM nam um 5,4 milljörðum króna á árinu
2008. Í nóvember 2007 var tekin ákvörðun um að minnka markaðsáhættu TM á sviði
fjárfestinga umtalsvert. Þessari ákvörðun var fylgt eftir á árinu 2008 þar sem
hlutabréf voru seld og erlend lán greidd að fullu. Þessar aðgerðir gerðu það að
verkum að félagið var mjög vel í stakk búið til að takast á við þær hamfarir
sem gengu yfir fjármálamarkaði á haustmánuðum 2008. Stjórn TM samþykkti nýja
fjárfestingarstefnu á miðju ári 2008 og í kjölfarið var nýtt fjárfestingarferli
skilgreint með það að markmiði að draga úr áhættu af einstökum fjárfestingum. 

Traustar eignir á móti vátryggingarskuld
Þrátt fyrir einstaklega erfiðar rekstraraðstæður á síðasta ári er fjárhagsstaða
TM sterk. Eftir söluna á Nemi er eigið fé TM, eignir umfram skuldir og
vátryggingarskuldbindingar (bótasjóður), rúmir 8,3 milljarðar króna,
eiginfjárhlutfall 31,2% og gjaldþolshlutfall móðurfélagsins 4,45. Eignir á móti
vátryggingaskuld (bótasjóður) eru nú traustari en áður og námu 13,5 milljörðum
í árslok. 


Sterk staða TM
Að afloknu miklu umbrotaári er staða TM sterk og félagið hefur mikla burði til
vaxtar. Þær aðgerðir sem ráðist var í á árinu 2008, sem m.a. fólu í sér
endurbætur á verklagi og eflingu áhættumats, munu skila sér í bættri afkomu af
vátryggingastarfssemi TM til framtíðar. Í því sambandi má sérstaklega nefna
innleiðingu á virðisgreiningu viðskiptavina sem gerir félaginu kleift að stýra
verðlagningu betur eftir umfangi og arðsemi viðskipta. Með sölu Nemi hefur
óvissu verið eytt og TM mun nú einbeita sér að innlendri starfsemi, þar sem
félagið hefur sterka markaðsstöðu og trygga viðskiptavini. 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson forstjóri, s. 515 2636.

Efnahagsreikningur TM að teknu tilliti til sölunnar á Nemi: Sjá viðhengi.

Attachments

tryggingamistoin - arsreikningur 2008.pdf - afkomutilkynning tm.pdf