Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150224 þann 24. apríl 2009. Alls bárust tilboð að nafnvirði ISK 2.040.000.000. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.840.000.000 á ávöxtunarkröfunni 6,5%. Útistandandi fyrir voru ISK 11.200.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 13.040.000.000. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: (+354) 515 4947 e-mail: egill@samband.is