Teymi hf. frestar birtingu ársreiknings


Uppgjör Teymis hf. fyrir árið 2008 mun ekki verða birt í lok apríl eins
og áður hefur verið tilkynnt um. 
  
Á grundvelli 2. mgr. 56. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti er félögum
sem eingöngu hafa skráð skuldabréf heimilt að birta ekki ársreikning að
því gefnu að lágmarksfjárhæð hvers skuldabréfs sé a.m.k. 50.000 EUR að
nafnvirði á útgáfudegi bréfanna. Ársreikningur félagsins muni liggja fyrir á
aðalfundi þess.