5. maí 2009 Þann 9. mars tók Fjármálaeftirlitið yfir vald hluthafafundar Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. (Straumur), vék stjórn bankans frá störfum og skipaði Straumi skilanefnd sem tók við öllum heimildum stjórnar félagsins. Nýr forstjóri Straums var ráðinn til starfa þann 17 mars. Þann 19. mars veitti Héraðsdómur Reykjavíkur Straumi heimild til greiðslustöðvunar sem gildir til 11. júní 2009, sbr. tilkynningu frá Straumi þann 19. mars. Endurskipulagning Straums stendur nú yfir og hefur framkvæmdastjórn bankans fundað með lánveitendum í þeim tilgangi að endurskipuleggja rekstur félagsins og koma nýrri skipan á fjármál þess, sbr. tilkynningar frá Straumi 30. mars og 17. apríl s.l. Vegna framangreindra aðstæðna er vinnu við gerð ársreikning Straums fyrir árið 2008 enn ekki lokið. Ráðgert er að þeirri vinnu ljúki í maí og að þá verði unnt að birta ársreikninginn opinberlega, sbr. 57. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Fjármálaeftirlitið hefur orðið við beiðni Straums um að fresta skilum á ársuppgjöri til loka maí nk. Sú heimild nær ekki til þess að fresta birtingu ársreikningsins eins og ráða mátti af fyrri tilkynningu. Nánari upplýsingar veitir: Georg Andersen Forstöðumaður Samskiptasviðs S:+354 585 6707 georg@straumur.com
Leiðrétt: Straumur frestar birtingu ársreiknings
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.