Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2008 var tekinn til fyrri umræðu af hreppsnefnd fimmtudaginn 7. maí 2009 og vísað til seinni umræðu. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða fer fram miðvikudaginn 20. maí nk. Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess þ.e. A og B hluta, sbr. 60 gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998 Til A hluta, þ.e. sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessarra fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Hafnarsjóður, Naust og Fræ ehf. Tekjur sveitarfélagsins voru nokkuð undir áætlun, eða 40 millj. kr. í samanteknum A og B hluta. Að sama skapi eru rekstrargjöld 34 millj. kr. lægri en áætlun gerði ráð fyrir. Samkvæmt ársreikningi var afkoma fyrir fjármagnsliði um 5 millj. kr. lakari en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir í samanteknum A og B hluta. Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur voru 75 og rekstrarniðurstaða 80 millj. kr. lakari en gert var ráð fyrir í áætlun. Frekari upplýsingar veitir: Björn Guðmundur Björnsson, sveitarstjóri bjorngb@langanesbyggd.is, í síma 468 1220 eða 866 7813.