Tillögur félagsstjórnar Exista hf. til hluthafafundar félagsins þann 26. maí 2009


Dagskrárliður 1: Tillögur um breytingar á samþykktum

 a.Lagt er til að ákvæði 1. mgr. 11. gr. samþykkta félagsins verði breytt sem
   hér segir: 

   Aðalfund skal halda fyrir lok ágúst ár hvert.

 b.Lagt er til að ákvæði 1. mgr. 12. gr. samþykkta félagsins verði breytt sem
   hér segir: 

   Til hluthafafundar skal boða á sannanlegan hátt. Fundarefnis skal getið í
   fundarboði. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins eða um sameiningu
   þess við önnur félög eða fyrirtæki má ekki taka til meðferðar á fundum þess
   nema þess hafi verið getið í fundarboði. Ef taka á til meðferðar tillögu til
   breytinga á samþykktum félagsins, skal greina meginefni tillögunnar í
   fundarboði. Hluthafafund skal boða með minnst viku en lengst 4 vikna
   fyrirvara. Hluthafafundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. 

 c.Lagt til að ákvæði 2. mgr. 19. gr. samþykkta félagsins verði breytt sem hér
   segir: 

   Eigi síðar en viku fyrir aðalfund skal stjórn félagsins leggja fram
   ársreikning, ársskýrslu og endurskoðunarskýrslu og gera aðgengilega fyrir
   hluthafa.