- Sparisjóðsstjóraskipti hjá Sparisjóðnum í Keflavík


Geirmundur Kristinsson, Sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík lætur
formlega af störfum sem Sparisjóðsstjóri frá og með 1. júní 2009. Við starfi
Sparisjóðsstjóra tekur Angantýr V. Jónasson sem hefur síðustu misseri gengt
starfi svæðisstjóra Sparisjóðsins í Keflavík á vestfjörðum. Áður hafði verið
tilkynnt um þessa breytingu á aðalfundi Sparisjóðsins í apríl s.l.
Sparisjóðurinn í Keflavík og Sparisjóður Vestfirðinga sameinuðust í árslok 2007
og lét Angantýr þá af störfum sem sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Vestfirðinga og
tók við starfi svæðisstjóra. Geirmundur mun starfa áfram hjá Sparsjóðnum næstu
vikur, samhliða nýjum Sparisjóðsstjóra. 
 
Geirmundur hefur starfað samfleytt hjá Sparisjóðnum í Keflavík í 44 ár, eða frá
árinu 1965. Honum er þökkuð góð störf í þágu sparisjóðsins.