Breytingar á framkvæmdastjórn Straums


3. júní 2009
Stephen Jack, framkvæmdarstjóri fjármálasviðs Straums-Burðaráss
fjárfestingabanka hf. hefur látið af störfum. Straumur þakkar Stephen
fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar.
Jakob Ásmundsson hefur tekið við sem framkvæmdarstjóri rekstrar og
þar á meðal fjármála. Jakob var áður framkvæmdarstjóri
áhættustýringar Straums.

Nánari upplýsingar veitir:
Georg Andersen
Forstöðumaður Samskiptasviðs
Sími: +585 6707
georg@straumur.com