-Hlutafjáraukning hjá Travel Service


Í dag var undirritað samkomulag um aukningu hlutafjár í Travel Service,
dótturfélagi Icelandair Group í Tékklandi.  Meðeigendur Icelandair Group, 
Unimex Group og Roman Vik skrá sig fyrir nýju hlutafé í félaginu og auka hlut
sinn úr 34% í 49,9%. Með hlutafjáraukningunni minnkar hlutur Icelandair Group
úr 66% í 50,1%.  Hækkunin hefur engin áhrif á rekstur Icelandair Group en eigið
fé lækkar um 300 milljónir króna. 

„Með þessari hlutafjáraukningu er verið að styrkja stöðu Travel Service.
Rekstur félagsins hefur gengið vel á þessu ári og betur en áætlanir gerðu ráð
fyrir.  Við núverandi aðstæður í alþjóðlegum flugrekstri skapast ýmis tækifæri
til vaxtar sem félagið er að skoða.  Með hlutafjáraukningunni er félagið betur
í stakk búið til að styrkja stöðu sína á markaðnum í nánustu framtíð.“ segir
Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group. 


Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, Forstjóri Icelandair Group               Sími:896-1455
Bogi Nils Bogason,     Framkv.stj Fjármála Icelandair Group     Sími:665-8001
Sigþór Einarsson,      Aðst.forstjóri Icelandair Group          Sími:897-8363