- Útboð LSS150224


Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á LSS150224.
Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð allt að 2 milljarðar
króna að nafnvirði. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka
útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.
Eftirfarandi bönkum og verðbréfafyrirtækjum hefur verið boðið að gera tilboð:
Byr Sparisjóður, H.F. Verðbréf, Íslandsbanki, Íslensk verðbréf, Jöklar
Verðbréf, NBI, Nýi Kaupþing, MP Banki, Saga Capital Fjárfestingarbanki, VBS
fjárfestingarbanki og Virðing. 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu:


Útboðsfjárhæð:     2.000.000.000 (tveir milljarðar króna).

Lágmarkstilboð:    100.000.000 (hundrað milljónir króna)

Lánstími:          Til 15. febrúar 2024.

Endurgreiðslur:    Verðtryggðar jafnar hálfsárslegar greiðslur.

Nafnvextir:        Fastir vextir 3,75%.

Grunnvísitala:     Verðtryggt með vísitölu neysluverðs (VNV) október 2008, gildi
                   hennar er 312,8.

Einingar:          1 kr. rafbréf.

Þóknun:            Lánasjóðurinn greiðir 0,5% þóknun.

Tilboð:            Í tilboði skal taka fram ávöxtunarkröfu án þóknunar,
                   tilboðsfjárhæð og „hreint“ verð án þóknunar.

Fyrirkomulag: 	“Hollensk” uppboðsaðferð þar sem allir tilboðsgjafar fá sömu  
                   ávöxtunarkröfu og hæst er tekið. Lánasjóðurinn áskilur sér
                   rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka 
                   hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Uppgjör sölu:      Miðvikudaginn 1. júlí 2009.


Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:15, föstudaginn 26. júní  2009 til Lánasjóðs
sveitarfélaga, b.t. Óttars Guðjónssonar/ Egils Skúla Þórólfssonar, Borgartúni
30, 105 Reykjavík, Íslandi. 

Einnig má senda tilboð í tölvupósti til ottar@samband.is/egill@samband.is eða
með myndsendi í 515-4903 á tilboðsdegi. 

Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 09:30 mánudaginn 29. júní 2009.