- Afturköllun tilkynningar til fyrirtækjaskrár um hlutafjáraukningu


Exista hf. og fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra hafa undanfarið átt í viðræðum
vegna tilkynningar Exista til fyrirtækjaskrár um hlutafjáraukningu auk fleiri
atriða frá 8. desember 2008. Ábendingar höfðu borist félaginu frá
fyrirtækjaskrá um að í tilkynningunni væru atriði, sem kynnu að orka tvímælis.
Þrátt fyrir að Exista telji tilkynninguna eðlilega hefur félagið afturkallað
hana til að eyða öllum efasemdum um réttmæti hennar og í samráði við
fyrirtækjaskrá. 

Eins og fram kom í tilkynningum til Kauphallar 4. og 8. desember 2008 hyggst
stjórn Exista leggja til við hluthafafund að hlutafé félagsins verði fært
niður. Viðræður Exista við fjármálastofnanir um endurskoðun lánasamninga og
uppgjör gagnkvæmra krafna hafa hins vegar valdið töfum á því. Vonast stjórn
Exista til þess að unnt verði að leggja tillögu um að færa niður hlutaféð fyrir
hlutahafafund sem allra fyrst.