- Nýjar reglur um viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands


Undanfarnar vikur hefur verið unnið að endurskoðun á reglum um viðskipti
fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands. Nýjar reglur munu taka gildi 1. júlí
nk. 

Tilgangur með endurskoðun reglnanna er að skýra betur þá fyrirgreiðslu sem
Seðlabankinn veitir fjármálafyrirtækjum. Nýju reglurnar eru í
grundvallaratriðum svipaðar og eldri reglur, nr. 808 frá 22. ágúst 2008. Tvær
breytingar frá eldri reglum hafa þó verið gerðar sem nauðsynlegt er að skýra
sérstaklega. Í fyrsta lagi eru settar strangari reglur um þær tryggingar sem
eru hæfar í viðskiptum við Seðlabankann. Hæfar tryggingar í viðskiptum við
Seðlabanka Íslands eru nú einkum íbúðabréf Íbúðalánasjóðs, ríkisbréf og
ríkisvíxlar. Í öðru lagi eru í nýju reglunum ákvæði sem veita Seðlabankanum
víðtækari og skýrari heimildir til stýra lausu fé á markaði. 

Skilmálar verða birtir á vefsíðu Seðlabankans og greina þeir nánar frá útfærslu
reglnanna. 

Nánari upplýsingar veitir Gerður Ísberg aðstoðarframkvæmdastjóri alþjóða- og
markaðssviðs í síma 569-9600.