Helstu niðurstöður fyrir annan ársfjórðung 2009 * Sala var 81,3 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 3% mælt í staðbundinni mynt, eða 12% í USD * EBITDA var 17,0 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 11% * EBITDA hlutfall var 21%, sem er sama hlutfall og fyrir sama tímabil í fyrra * Hagnaður tímabilsins var 3,5 milljónir Bandaríkjadala, samanborið við 3,9 milljónir á sama tímabili árið 2008 * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 0,83 bandarísk sent, samanborið við 0,93 sent á sama tímabili í fyrra * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut, að teknu tilliti til kauprétta, var 3,2 bandarísk sent, samanborið við 2,4 á sama tímabili í fyrra Helstu niðurstöður fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2009 * Sala var 158,5 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 3% mælt í staðbundinni mynt, eða 12% í USD * EBITDA var 29,8 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 29% * EBITDA hlutfall var 19%, samanborið við 23% á sama tímabili í fyrra * Hagnaður tímabilsins var 11,1 milljón Bandaríkjadala, samanborið við 10,6 milljónir á sama tímabili árið 2008 * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 6,84 bandarísk sent, jókst um 45% * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut, að teknu tilliti til kauprétta, var 11,92 bandarísk sent, jókst um 21% Jón Sigurðsson, forstjóri: "Efnahagsþrengingar á öllum okkar helstu mörkuðum hafa haft áhrif á sölu og viðskiptavinir okkar fara varfærnislega vegna óvissu um ástandið. Samningar við suma birgja í Evrópu hafa ekki verið endurnýjaðir sem hefur tímabundið neikvæð áhrif á sölu í Evrópu en ekki arðsemi. Skýr stefna í sölu og markaðsmálum í Bandaríkjunum gefur von um jákvæða þróun. Ný útgáfa af rafeindastýrða hnénu RHEO KNEE II sem og staðfesting á að rafeindastýrði fóturinn PROPRIO FOOT hahfi verið samþykktur inn í endurgreiðslukerfið í Bandaríkjunum eru mikilvægir áfangar fyrir framtíð bionic vörulínunnar." The press release including tables, the Investor Presentation Q2 2009 and the Financial Statement Q2 2009 can be downloaded from the following links: