Uppgjör annars ársfjórðungs og fyrri helmings 2009


Afkoma Icelandair Group á öðrum ársfjórðungi 2009

•    Rekstrarbati hjá Icelandair ehf. miðað við sama tíma í fyrra
•    Heildarvelta Icelandair Group var 33,7 milljarðar króna og jókst um 17% frá
     sama tíma í fyrra 
•    EBITDA  var  1,3 milljarðar króna en var 1,9 milljarðar króna á sama tíma í
     fyrra 
•    EBIT var neikvæð um 36 milljónir króna en var  0,9 milljarðar króna á sama
     tíma í fyrra 
•    Fjármagnskostnaður var 1,5 milljarðar króna samanborið við  0,4 milljarða 
     króna árið áður 
•    Tap eftir skatta var 1,3  milljarðar króna en hagnaður var 0,4 milljarðar
     króna á sama tíma í fyrra 

Afkoma Icelandair Group fyrstu 6 mánuði 2009
•    Niðurstaðan var betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, þrátt fyrir krefjandi 
     rekstrarumhverfi 
•    Heildarvelta félagsins var 54,5 milljarðar króna og jókst um 27% frá sama
     tíma í fyrra 
•    EBITDA  var neikvæð um 1,0 milljarð króna en var jákvæð um 1,0 milljarð
     króna á sama tíma í fyrra 
•    EBIT var neikvæð um 3,5 milljarða króna en var neikvæð um 0,8 milljarða
     króna á sama tíma í fyrra 
•    Afkoma erlendra dótturfélaga fyrir skatta var 3,8 milljörðum króna verri
     en á sama tíma í fyrra 
•    Fjármagnskostnaður var 2,1 milljarður króna samanborið við 0,7 milljarða
     króna á sama tíma í fyrra 
•    Tap eftir skatta var 5,0  milljarðar króna en var 1,3 milljarðar króna á
     sama tíma í fyrra 
•    Handbært fé í lok ársfjórðungsins var 6,2 milljarðar króna, en var 6,3
     milljarðar á sama tíma í fyrra 
•    Eiginfjárhlutfall var 17,8 % í lok júní 2009, en var 20,3% í lok ársins
     2008 
•    Eignir voru  105,9 milljarðar króna í lok júní 2009 samanborið við 98,8
     milljarða króna í árslok 2008

Ummæli Björgólfs Jóhannssonar forstjóra ásamt fréttatilkynningu er að finna í
viðhengi.

Attachments

icelandair group hf 30 6 2009.pdf q2_2009_afkoma_.pdf