- 6 mánaða uppgjör


Fyrir mistök birtist fréttatilkynning þessi ekki á Evrópska efnahagssvæðinu á
föstudaginn var og er því birt aftur. 


Afkoma Vinnslustöðvarinnar hf.
rekstrartímabilið 1. janúar 2009 - 30. júní 2009

Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. samþykkti í dag uppgjör félagsins fyrir fyrri
hluta yfirstandandi rekstrarárs. Árshlutareikningur félagsins er í evrum (EUR).
Í uppgjörinu kemur meðal annars fram eftirfarandi: 

2,9 milljóna evra hagnaður á rekstrartímabilinu
•	Hagnaður á rekstrartímabilinu var rúmlega 2,9  milljónir evra en rúmlega 3,4
milljón evra hagnaður var á rekstrinum á sama tímabili á árinu 2008. 

•	Heildartekjur félagsins voru 25 milljónir evra og drógust saman um 7,7
milljónir evra frá sama tímabili á fyrra ári eða um 23,5%. Tekjur fiskvinnslu
lækkuðu um rúmar 2,4 milljónir evra og tekjur útgerðar lækkuðu um 3,8 milljónir
evra. Tekjur af vörusölu, endursölu mjöls og lýsis, drógust saman um tæplega
2,6 milljónir evra. 

•	Framlegð félagsins (hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði) nam 4,9
milljónum evra eða 19,7% af heildartekjum og dróst saman um 2,1 milljónir evra
frá fyrra ári en þá var framlegðarhlutfall 21,6%. 

•	Veltufé frá rekstri nam 4,1 milljón evra á árinu og var 16,5% af
heildartekjum. Veltufé frá rekstri dróst saman um 27% frá fyrra ári þegar það
nam tæplega 5,7 milljónum evra. 

•	Afskriftir lækkuðu um 0,9 milljónir evra frá sama tímabili á árinu 2008 og
námu 1,6 milljónum evra. 

•	Fjármagnsliðir námu 0,6 milljónum evra í samanburði við 1,3 milljónir evra á
sama tímabili árið áður. 

•	Tekjur Hugins ehf., hlutdeildarfélags Vinnslustöðvarinnar, voru 5,5 milljónir
USD á tímabilinu.  Framlegð félagsins á tímabilinu var 1,8 milljónir USD og
hagnaður var 1,4 milljónir USD. Hlutdeild Vinnslustöðvarinnar í hagnaði Hugins
ehf. nam 0,5 milljónum evra. 

•	Tekjur About Fish ehf., hlutdeildarfélags Vinnslustöðvarinnar, voru 568
milljónir króna og hagnaður eftir skatta nam 18,3 milljónum króna. Hlutdeild
Vinnslustöðvarinnar í hagnaðinum var 87 þúsund evrur. 

•	Tekjur Ufsabergs-útgerðar ehf., hlutdeildarfélags Vinnslustöðvarinnar, námu
108 milljónum króna. Hagnaður félagsins var 8,2 milljónir króna og hlutdeild
Vinnslustöðvarinnar í hagnaðinum nam 11 þúsund evrum. 

Efnahagur í lok tímabilsins
Eignir félagsins hækkuðu um 5 milljónir evra frá byrjun árs til júníloka á
rekstrarárinu og voru 97 milljónir evra í lok tímabilsins. Heildarskuldir og
skuldbindingar Vinnslustöðvarinnar hf. hækkuðu um 2,1 milljón evra og voru 70,2
milljónir evra í lok tímabilsins. Nettóskuldir eru 48,3 milljónir evra og
lækkuðu um 2,2 milljónir evra frá áramótum. 

Eigið fé jókst frá áramótum um 2,9 milljónir evra. Aukningin stafar eingöngu af
hagnaðarrekstri tímabilsins. 

Rekstrarhorfur á yfirstandandi ári
Rekstrarhorfur eru óvissar  á síðari hluta rekstrarárs Vinnslustöðvarinnar.
Litlar líkur eru á að síldveiðar úr íslenska síldarstofninum verði leyfðar og
er það annað áfall félagsins á yfirstandandi ári því loðnuveiðar voru nánast
engar á síðustu vertíð. Vegna þessa þykir ljóst að tekjur félagsins muni
dragast talsvert saman, sem og framlegð félagsins, í samanburði við síðastliðið
rekstrarár. 

Staða Vinnslustöðvarinnar hf. er þrátt fyrir þetta sterk og félagið hefur burði
til að mæta tímabundnum áföllum sem þessum. 

Frekari upplýsingar:
Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri
 í símum 488 8004 og 897 9607

Vinnslustöðin hf.
www.vsv.is

Attachments

frettatilkynning_06_man_2009.pdf vinnslustoin hf 30.06.2009.pdf lykiltolur_6_man_2009.pdf