Eik fasteignafélag hf. - Sex mánaða árshlutauppgjör 2009


Eik fasteignafélag hf. birtir í dag sex mánaða árshlutauppgjör sitt að loknum
stjórnarfundi þar sem reikningar félagsins voru samþykktir. 

Niðurstaða Eikar fasteignafélags hf. fyrir fyrstu sex mánuði árisins 2009:

Hagnaður fyrirtækisins var neikvæður um 333,9 milljónir króna.
  • Velta var 903 milljónir króna, sem er 12% aukning frá fyrra ári.
  • EBITDA var 660,5 milljónir króna, sem er 12% aukning.
  • Arðsemi eiginfjár á ársgrundvelli var -29,4%.
  • Heildareignir félagsins voru að andvirði 20,4 milljarðar króna.
  • Víkjandi fjármagn, þ.e. eigið fé, víkjandi lán og
    tekjuskattsskuldbindingar, var að andvirði 3,24 milljarðar króna. 
  • Hlutfall víkjandi fjármagns var 15,9%.
  • Handbært fé frá rekstri var 193 milljónir króna.

Þrátt fyrir þær efnahagsþrengingar sem nú ganga yfir, með lækkun á
nýtingarhlutfalli og lækkun á leigu, hefur rekstur Eikar fasteignafélags gengið
samkvæmt áætlun.  Eftirspurn eftir eignum félagsins er góð. 

Ekki hefur tekist að semja um endurfjármögnun lána sem voru á gjalddaga í júní
að fjárhæð 537 milljónir, en viðræður standa yfir.  Fyrir utan þessi tvö lán
hefur félagið að öllu leiti staðið skil á vöxtum og afborgunum, en félagið
hefur ekki fengið frestun á sitt afborgunarferli.   Þar sem leigutekjur hafa
dregist saman og stór hluti fjármögnunar félagsins er vaxtaberandi skuldir er
ljóst að reksturinn er erfiður og félagið þarf á endurfjármögnun að halda. 

Í ljósi aðstæðna verður ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu en að hin
varfærna fjárfestingastefna félagsins hafi borgað sig.  Eigið fé félagsins í
sex mánaða uppgjörinu var 2.096 milljónir. 


Frekari upplýsingar veitir:
Garðar Hannes Friðjónsson,
forstjóri Eikar fasteignafélags hf.
S. 590 2200 / 861 3027

Attachments

09.08.31 arshlutareikningur fyrir fyrstu 6 manui 2009.pdf 09.08.31 frettatilkynning fyrir sex manaa uppgjor 2009.pdf