- Exista stefnt


Exista hafa borist stefnur frá Glitni banka hf. og HAF Funding 2008-1 Limited
þar sem gerðar eru þær dómkröfur að Exista greiði félögunum samtals tæplega 5,9
milljarða króna vegna lánasamninga sem upphaflega voru gerðir við Glitni banka
hf. Exista mun taka til varna í báðum málum enda hefur félagið gert upp kröfur
Glitnis banka hf. og tengdra félaga með skuldajöfnuði þar sem Exista á kröfur á
Glitni banka hf. á grundvelli gjaldmiðlasamninga. 

Gjaldmiðlasamningar eins og þeir sem gerðir voru við Glitni banka hf. voru
gerðir til að verjast gengissveiflum, meðal annars í íslensku krónunni, en
Exista færði reikninga sína í evrum þar sem meirihluti eigna og skulda
félagsins voru í erlendri mynt. Þótt Exista hafi með þessum hætti leitast við
að verja eigið fé sitt þá hafði lækkun krónunnar ávallt neikvæð áhrif á eigið
fé Exista. Exista hefur allt frá hruni íslenska fjármálakerfisins í október
2008 leitast við að ná samningum við skilanefnd Glitnis banka hf. um uppgjör
gagnkvæmra krafna en hefur ekki getað sótt rétt sinn fyrir dómstólum vegna
ákvæða laga nr. 125/2008 („neyðarlaganna“). Telur Exista því jákvætt að málið
sé nú komið í þann farveg að niðurstaða fáist fyrir dómstólum um slíkt uppgjör.