Rekstur Icelandair Group samstæðunnar gekk vel í ágúst. Samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri var EBITDA 0,5 milljörðum hærri en í ágúst 2008 eða 3,1 milljarður króna. EBITDA spá Icelandair Group fyrir árið 2009 er óbreytt eða 6,5 milljarðar króna. Miðað við núverandi forsendur lítur rekstur samstæðunnar ágætlega út það sem eftir er ársins og er núverandi EBITDA spá mun hærri en upphaflegar áætlanir fyrir árið gerðu ráð fyrir. Meðfylgjandi eru flutningstölur Icelandair Group í september. Nánari upplýsingar veitir: Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími +354 665 8801