- Flutningatölur desember og allt árið 2009


Flutningatölur desember 2009 og ársins í heild

Áætlanaflug
Icelandair flutti alls 1,3 milljónir farþega í reglulegu áætlunarflugi á
síðasta ári, sem eru 9% færri farþegar en á árinu 2008. Félagið dró úr framboði
sínu um 9% á árinu. Sætanýting í flugi Icelandair var þannig 75% á árinu 2009,
eða sú sama og árið á undan og svipuð og fjögur undanfarin ár. 
Icelandair skiptir farþegum sínum gjarnan eftir þremur mörkuðum, ferðamenn á
leið til Íslands, Íslendinga á leið til útlanda og farþega á leið milli Evrópu
og Norður-Ameríku með viðkomu á Keflavíkurflugvelli. Á árinu 2009 varð
umtalsverð breyting á hlutföllum milli þessara þriggja markaðshópa. Farþegum
til Íslands fjölgaði um 9%, og fóru úr 40% í 49% allra farþega félagins. Þetta
hlutfall erlendra ferðamanna meðal farþega Icelandair hefur aldrei verið svo
hátt áður.  Íslendingar á leið til útlanda voru um 22% farþega félagsins á
árinu 2009. Þeir voru 31% á árinu 2008, og fækkaði þannig um þriðjung milli
ára. Farþegar á leið um Keflavíkurfluguvöll milli heimsálfanna voru 29% af
heildinni, líkt og á árinu 2008. 
Flugfélag Íslands flutti 375 þús. farþega samanborið við 416 þús. farþega á
árinu 2008.  Sætanýting var 69% á árinu 2009 samanborið við 67% á árinu 2008. 

Leiguflug
Á sviði leiguflugs og flugvélaviðskipta markaðist árið nokkuð af þeim erfiðu
aðstæðum sem uppi eru í alþjóðaflugrekstri. Sérstaklega sáust þessa merki hjá
SmartLynx í Lettlandi.  Seldir blokktímar jukust um 2% milli ára en nýting
flugflotans fór úr 97% í 94%. 

Farmflutningar
Framboð farmflutningafyrirtækjanna Bluebird og Icelandair Cargo minnkaði um 28%
milli áranna 2008 og 2009.  Flutt magn minnkaði um 37%. 

Ferðaþjónusta
Framboð hótelherbergja hjá Icelandair Hotels var svo til óbreytt milli ára en
nýting fór úr 66% í 68%. 

Bókunarstaða
Á fyrsta ársfjórðungi 2010 eykur Icelandair framboð sitt um 20% frá sama tíma
árið 2009. Bókanir fyrir fyrsta ársfjórðung hafa farið vel af stað og eru nú
25% yfir því sem var á sama tíma fyrir ári. 
Þrátt fyrir að einhver batamerki megi greina á markaði, þá má búast við að
nokkur tími muni líða þar til eftirspurn og einingaverð í leiguflugi réttir úr
kútnum. 


Nánari upplýsingar veitir:
Bogi Nils Bogason Framkvæmdastjóri Fjármála Icelandair Group
s:665-8001

Attachments

traffic data - dec.pdf