Niðurstaða í útboði ríkisbréfa RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612


Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 11 0722:
Alls bárust 21 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.100 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 3.750 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,80 (7,34%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 25 0612:
Alls bárust 61 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 17.037 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 6.737 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,40 (7,83%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 9.
febrúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 10. febrúar 2010.

Attachments

nidurstodurrikb_100105.pdf