H.F. Verðbréf verður viðurkenndur ráðgjafi á First North Iceland


NASDAQ OMX Iceland hf. hefur samþykkt að H.F. Verðbréf verði viðurkenndur
ráðgjafi (e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland. Hlutverk viðurkennds
ráðgjafa felst í því að vera til ráðgjafar og aðstoðar fyrirtækjum við
skráningu á First North og á meðan bréf þeirra eru í viðskiptum á markaðnum. 

Þórður Friðjónsson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland sagði: ”Við bjóðum H.F.
Verðbréf velkomin til starfa sem Viðurkenndur ráðgjafi á First North Iceland.
Það er mikilvægt að fyrirtæki í vexti sem hyggja á skráningu á First North
markaðinn geti leitað eftir faglegri ráðgjöf og aðstoð sérðfróðra aðila á borð
við H.F. Verðbréfa. Það hjálpar til við að byggja upp hlutabréfamarkaðinn.” 

Aðkoma viðurkennds ráðgjafa að markaðnum er til þess fallin að byggja traustan
markað því það er á ábyrgð hans að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt
þær aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á First North. 

H.F. Verðbréf er fimmta fjármálafyrirtækið gegnir hlutverki viðurkennds
ráðgjafa á First North Iceland.