Samkomulag það sem Eignarhaldsfélagið Farice ehf. og kröfuhafar þess gerðu í desember 2009 hefur verið framlengt til 19. mars n.k. Samkomulagið felur sem fyrr í sér að félagið fær frest út samningstímann til að greiða eða semja um gjaldfallnar afborganir. Eignarhaldsfélagið Farice ehf. hefur að undanförnu unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu á félaginu í samstarfi við kröfuhafa og aðra hagsmunahafa félagsins með aðstoð ráðgjafa.