Íbúðalánasjóður tilkynnir niðurstöðu í útboði íbúðabréfa, dags. 15. mars 2010. Alls bárust gild tilboð að nafnvirði 8,561 milljarðar króna. Ákveðið var að taka tilboðum í eftirtalin íbúðabréf: HFF150224 að nafnvirði 1,457 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,79% HFF150434 að nafnvirði 1,350 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,76% HFF150644 að nafnvirði 3,054 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,76% Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 3,77% og 3,78% með þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 19. mars 2010. Nánari upplýsingar veita Ívar Ragnarsson sími 569 6990, Herdís Einarsdóttir sími 569 6993 og Ingi Kristinn Pálsson 569 6995.