- Ársreikningur 2009


Góð afkoma á rekstri Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.

Afkoma 2009
Tekjuafgangur 2009 var 1.656 m.kr. á móti 1.225 m.kr. árið áður. Háir vextir á
innlendum markaði sem og mikil verðbólga skiluðu mjög góðri afkomu en eignir
sem samsvara eigin fé sjóðsins eru að mestu bundnar í verðtryggðum útlánum.
Ávöxtun á lausu fé var einnig framúrskarandi, en það var svo til allt varðveitt
í Seðlabankanum. 

Meginhlutverk sjóðsins er að tryggja sveitarfélögum, stofnunum þeirra og
fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum. Útborguð langtímalán á árinu 2009 voru
8.421 m.kr. miðað við 15.505 m.kr. á fyrra ári. 

Sjóðurinn hefur ekki tapað útláni frá því að hann hóf starfsemi árið 1967 og
engin vanskil voru í árslok 2009. Sveitarfélögin bera ekki ábyrgð á
skuldbindingum sjóðsins, en tryggingar fyrir útlánum hans eru í tekjum
sveitarfélaga skv. 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, sbr. einnig
reglugerð um tryggingar Lánasjóðs sveitarfélaga í tekjum sveitarfélags nr.
123/2006. 

Eigið fé í árslok 2009 var 12.930 m.kr. á móti 11.273 m.kr. árið áður. Vegið
eiginfjárhlutfall, svonefnt CAD-hlutfall, var í árslok 2009 67% en var 57% í
árslok 2008, en þarf að vera 8% skv. lögum um fjármálafyrirtæki. 


Lánasjóðurinn verður með fjárfestakynningu á skrifstofu sjóðsins Borgartúni 30,
5. hæð, fimmtudaginn 25. mars 2010 kl.16:00.

Attachments

lanasjour sveitarfelaga - arsreikningur 2009.pdf lanasjour sveitarfelaga - frett i kaupholl vegna uppgjors 2009.pdf