Bráðabirgðastjórn hefur ákveðið að segja upp öllum starfsmönnum bankans


Bráðabirgðastjórn VBS fjárfestingarbanka hf. hefur ákveðið að segja upp öllum
starfsmönnum bankans. Fer bráðabirgðastjórn þess á leit við starfsmennina að
þeir vinni út umsaminn uppsagnarfrest eða þar til annað verður ákveðið. Ekki
liggur fyrir að svo stöddu hvort einhverjir eða allir starfsmenn verði
endurráðnir.