Skuldabréf Bakkavör Group hf. tekin úr viðskiptum


NASDAQ OMX Iceland hf. hefur ákveðið að taka skuldabréf Bakkavör Group hf.
(auðkenni: BAKK 05 1) úr viðskiptum þar sem héraðsdómur hefur staðfest
nauðasamning félagsins. Sjá tilkynningu frá félaginu dags. 25. mars 2010. 

Skuldabréfin verða tekin úr viðskiptum við lok viðskipta þann 30. mars 2010.