Reikningsskil 2009


Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði
Landsbankans, hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2009. Í lok
ársins 2009 annaðist Landsvaki hf. rekstur 22 sjóða um sameiginlega
fjárfestingu en á árinu voru stofnaðir 2 nýir sjóðir og 5 sjóðum var slitið. Í
árslok nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 44 milljörðum króna
samanborið við 76 milljarða í árslok 2008. 

Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi. 

• Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
ársreikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur ársreikning verðbréfa-,
fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í
samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar
voru af Fjármálaeftirlitinu. 

• Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af KPMG sem telur að reikningurinn
gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2009, efnahag þess 31.
desember 2009 og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðanna á árinu 2009,
í samræmi við lög og settar reikningsskilareglur. 

Þær aðstæður sem sköpuðust á íslenskum fjármálamarkaði við fall bankanna í
byrjun október 2008 höfðu mikil áhrif á rekstrarumhverfi félagsins árið 2009 og
ollu mikilli rýrnun á eignum einstakra sjóða í rekstri Landsvaka. 

Hagnaður var af rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 39,7 milljónir króna
samkvæmt rekstrarreikningi félagsins. Eigið fé Landsvaka hf. í lok ársins nam
323,2 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins,
sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 53,51% en þetta
hlutfall má ekki vera lægra en 8% samkvæmt lögum. 

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veitir Björn Þór Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Landsvaka í síma 410 7197.

Attachments

frettatilkynning arsuppgjor 2009.pdf lykiltolur landsvaki hf pr 31_12_2009.pdf landsvaki hf arsreikningur 31_12_2009 kaupholl.pdf