Aðalfundur HB Granda verður haldinn 23. apríl nk.


Aðalfundur HB Granda hf. verður haldinn föstudaginn 23. apríl 2010 í matsal
fyrirtækisins að Norðurgarði, Reykjavík, og hefst hann kl. 17:00. 

Dagskrá.

1.  Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 18. gr. samþykkta félagsins.

2.  Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum samkvæmt 55. gr.
    hlutafélagalaga. 

3.  Önnur mál, löglega upp borin.

  
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á
skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Ennfremur er
hægt að nálgast gögnin á vefsíðu félagsins www.hbgrandi.is. 

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm dögum fyrir upphaf
aðalfundar.  Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar
en tveimur dögum fyrir aðalfund. 

Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 16:30.

Óski hluthafar eftir að ákveðin mál verði tekin til meðferðar á aðalfundinum,
þarf skrifleg beiðni um það að hafa borist félagsstjórn með nægjanlegum
fyrirvara, þannig að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins. 

Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera
það skriflega.