Útboð ríkisbréfa RIKS 21 0414


Útboð á verðtryggðum ríkisbréfum í flokki RIKS 21 0414 með tilboðsfyrirkomulagi
fór fram hjá Seðlabanka Íslands kl. 14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að
bjóðendum buðust öll samþykkt tilboð á sama verði. Hæsta samþykkta
ávöxtunarkrafa ákvarðaði söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

Alls bárust 55 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 33.082 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 5.870 m.kr. að nafnverði á 3,80% ávöxtunarkröfu, sem
jafnframt verða raunvextir flokksins. 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 13.
apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 14. apríl 2010.

Attachments

niurstour riks21.pdf