Samkomulag um aðra endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands


Samkomulag hefur náðst um að önnur endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands í
samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) verði tekin fyrir í
framkvæmdastjórn sjóðsins. Stefnt er að því að endurskoðunin verði rædd í
stjórninni 16. apríl næstkomandi. Að endurskoðuninni lokinni yrði til reiðu
þriðji áfangi lánafyrirgreiðslu AGS að fjárhæð 20 milljarðar króna (105
milljónir SDR, jafnvirði 159 milljóna Bandaríkjadala). 

Nánari upplýsingar má finna hér: 

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið 
http://www.efnahagsraduneyti.is/

og 

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn 
http://www.imf.org/external/np/sec/pr/2010/pr10139.htm