Í tilkynningu frá Icelandair Group hf. þann 25. mars síðastliðinn kom fram að félagið ynni að fjárhagslegri endurskipulagningu í samstarfi við lánveitendur sína. Jafnframt var tilkynnt að stefnt væri að lokuðu hlutafjárútboði með innlendum fagfjárfestum í því skyni að styrkja frekar fjárhagslegan grundvöll fyrirtækisins. Í tilkynningunni var áréttað að í endurskipulagningunni væri gert ráð fyrir aðkomu annarra lánveitenda auk leigusala flugvéla sem dótturfélög Icelandair Group nýta í rekstri sínum. Þar var jafnframt tekið fram að leita þurfi eftir samþykki hluthafafundar samstæðunnar fyrir ákveðnum þáttum endurskipulagningarinnar, auk endanlegs samþykkis lánveitenda. Í tengslum við fyrirhugaða hlutafjáraukningu réði Icelandair Group þýska bankann DVB Bank til að framkvæma verðmat á félaginu vegna mögulegrar aðkomu nýrra fjárfesta að Icelandair Group. DVB var upphaflega ráðgjafi íslenskra fjármálastofnana í endurskipulagningarferlinu og hafa fulltrúar DVB verið þátttakendur í ferlinu frá miðju ári 2009. Við gerð verðmatsins höfðu fulltrúar DVB aðgang að fimm ára fjárhagsáætlunum Icelandair Group og miðar það að því að áætla verðmæti félagsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu þess. DVB byggir verðmat sitt mati á núvirtu frjálsu fjárstreymi og á samanburði við kennitölumargfaldara sambærilegra fyrirtækja. Verðmæti Loftleiða var hins vegar aðeins metið út frá núvirtu frjálsu fjárstreymi. Niðurstöður verðmatsins eru byggðar á meðaltali þessara verðmatsaðferða og verðmetur virði eigin fjár Icelandair Group, fyrir þau áhrif sem útboðið hefur, á bilinu 16,4 til 25,6 milljarða króna. Mikilvægt er að árétta að verðmatið tekur ekki til hlutabréfa Icelandair Group sem skráð eru í Kauphöll Íslands og fjárfestar ættu ekki að nýta verðmatið sem grundvöll fyrir fjárfestingarákvörðun. Forsendur verðmatsins byggja á því að fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækisins verði til lykta leidd á farsælan máta sem m.a. gerir ráð fyrir verulegum breytingum á efnahagsreikningi Icelandair Group hf. Í viðhengi er einnar blaðsíðu samantekt á niðurstöðum verðmats DVB bankans. Frekari upplýsingar veita: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri, 896-1455 Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, 665-8801