Áhrif eldsumbrota í Eyjafjallajökli á Icelandair Group


Undanfarna daga hafa starfsmenn Icelandair Group unnið að því að lágmarka
röskun fyrir viðskiptavini samstæðunnar vegna eldsumbrota í Eyjafjallajökli. 
Ástandið snertir flest fyrirtæki innan samstæðu Icelandair Group en þó
sérstakleg þau sem eru í alþjóðlegum flugrekstri, þ.e. Icelandair, Icelandair
Cargo og Bluebird auk þess sem áhrifin eru nokkur á Iceland Travel og Vita. 
Áætlanir gera ráð fyrir að tap samstæðunnar vegna takmarkaðrar flugumferðar til
Evrópu nemi samtals um 100 milljónum króna á dag. 
Þrátt fyrir talsverða röskun á flugi til Evrópu hefur Icelandair bætt við
flugferðum þegar færi hefur gefist til að tryggja að viðskiptavinir verði fyrir
sem minnstum óþægindum vegna eldgossins. Flogið var til Glasgow og Þrándheims
með á annað þúsund farþega og nú í morgun hófst flug til fleiri borga á
Norðurlöndunum.  Jafnframt hefur fraktflutningum verið haldið uppi eins og
mögulegt hefur verið. 
Miðað við nýjustu vindaspár er gert ráð fyrir að Keflavíkurflugvöllur verði
opinn næstu daga. Engin röskun hefur orðið á flugi Icelandair til Bandaríkjanna
og áætlanir gera ráð fyrir að Icelandair muni áfram halda uppi loftbrú á milli
Evrópu og Bandaríkjanna í vikunni sem er að hefjast. 
Icelandair Group leggur mikið kapp á að veita viðskiptavinum sem besta
þjónustu. Vill félagið koma þökkum á framfæri við viðskiptamenn félagsins sem
hafa sýnt skilning á þeim krefjandi aðstæðum sem nú eru ríkjandi. 

Frekari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri, 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, 665-8801