Ársreikningur 2009


Þriðjudaginn 20. apríl 2010 var ársreikningur Snæfellsbæjar 2009 tekinn til
fyrri umræðu.  Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um
ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Síðari umræða um
ársreikningurinn verður fimmtudaginn 6. maí n.k. 

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók
gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert
ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við
ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu
leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar
á grundvelli þeirra.  Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum
reikningsskilaaðferðum. 

Ársreikningur Snæfellsbæjar fyrir árið 2009 byggir á sömu
reikningsskila¬aðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 1.522,3 millj. króna samkvæmt
samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir rekstrartekjum um 1.298,0 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um
1.154,4 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um
1.029,5 millj. króna. 

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A-
og B-hluta var rekstrarafgangur að fjárhæð um 54,2 millj. króna en samkvæmt
fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir tapi upp á 166,5 millj. króna. Afkoman varð
því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 220,7 millj. króna.
 Rekstrarniðurstaða A-hluta var rekstrarafgangur að fjárhæð 22,5 millj. króna
en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir tapi upp á um 130,9 millj. króna. Afkoman
varð því betri sem nemur 153,4 millj. króna.  Ástæða þessa er að mestu leyti
hærri skatttekjur og lægri fjármagnsgjöld, en áætlun ársins 2009 var gerð í
kjölfar hrunsins og allar tekjuáætlanir varfærnar ásamt því að gert var ráð
fyrir hærri verðbólgu á árinu en raunin varð. 

Veltufé frá rekstri var 270,9 millj. króna og veltufjárhlutfall er 1,42. 
Handbært frá rekstri var 282,2 milljónir. 

Heildareignir bæjarsjóðs námu um 2.107,4 millj. króna og heildareignir
sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 2.704,7 millj. króna í árslok
2009. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.454,9 millj. króna og í samanteknum
ársreikningi um 1.894,5 millj. króna. 

Fjárfestingarhreyfingar voru 164,1 milljónir og fjármögnunarhreyfingar 39,6
milljónir. Snæfellsbær fjárfesti á árinu fyrir 197 milljónir í varanlegum
rekstrarfjármunum og tók ný lán upp á 131,8 millj. króna en greiddi niður lán
að fjárhæð 171,4 milljónir. 
Álagningarhlutfall útsvars var 13,03%. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam
0,44% á íbúðarhúsnæði og álagningarhlutfall á aðrar fasteignir nam 1,55%. 
Hægt verður að nálgast ásreikninginn á bæjarskrifstofunni Snæfellsási 2,
Hellissandi, sími 433-6900. Einnig á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is.

Attachments

lykiltolur.pdf snfellsbr 2009.pdf