Varðar ársreikning 2009


Í kjölfar banka- og gjaldeyrishruns vinnur Sparisjóður Bolungarvíkur að
fjárhagslegri endurskipulagningu með lánardrottnum sínum, sem m.a. felur það í
sér að kröfum lánardrottna á hendur sparisjóðnum er umbreytt í stofnfé. 

Stefnt var að því að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu fyrir lok apríl en
ekki hefur enn reynst unnt að ljúka endurskipulagningunni, þrátt fyrir að allir
hlutaðeigandi lánardrottnar, þ.m.t. allir eigendur skuldabréfa, útgefin af
Sparisjóði Bolungarvíkur, hafi fyrir sitt leyti samþykkt fjárhagslega
endurskipulagningu sparisjóðsins, þar sem forsenda hennar er sú að
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) veiti samþykki sitt fyrir henni. 

Vegna þessa liggur ekki enn fyrir endanlegt samþykki fyrir endurskipulagningu
sparisjóðsins og hefur stjórn hans því ekki talið sér fært að samþykkja
ársreikning fyrir árið 2009 og er ljóst að ekki mun reynast unnt að samþykkja
reikninginn fyrir lok apríl. 

Samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu hefur stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur
óskað eftir því við NASDAQ OMX á Íslandi, með vísan til 21. gr. reglugerðar nr.
245/2006 um opinbera skráningu verðbréfa í kauphöll, að skuldabréf, útgefin af
sparisjóðnum, með auðkenninu SPBOL 05 1, sem tekin voru til skráningar í
Kauphöll Íslands samkvæmt skráningarlýsingu, dags. 30. nóvember 2005, verði
tekinn af skrá NASDAQ OMX á Íslandi. Hafa allir eigendur nefnda skuldabréfa
samþykkt fyrir sitt leyti að skuldabréfin verði tekin af skrá kauphallar.