Kristinn Geirsson ráðinn aðstoðarforstjóri Nýherja


Kristinn Geirsson rekstrarhagfræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri
Nýherja hf. 

Kristinn er 43 ára viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og
rekstrarhagfræðingur - MBA - frá Warthon School, University of Pennsylvania.
Hann hefur áður m.a. gegnt störfum framkvæmdastjóra eða forstjóra hjá Glitni
banka hf., Sund ehf., Ingvari Helgasyni ehf., Skjá einum ehf., Goða hf. og
Samskipum hf.