Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar


Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um
0,5 prósentur. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka í 7,0% og
hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum í 8,25%. Vextir á lánum gegn veði til
sjö daga lækka í 8,5% og daglánavextir í 10,0%.