Fjármálaráðherra hefur falið Lánamálum ríkisins hjá Seðlabanka Íslands að gera samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Aðilar að NASDAQ OMX á Íslandi, sem geta með sannarlegum hætti sýnt fram á eiginfjárstöðu að fjárhæð a.m.k. 2.000 m.kr og hafa nauðsynlegan búnað til þess að taka þátt í útboðum ríkisverðbréfa, geta óskað eftir því að gerast aðilar að samningunum. Fyrirhugað er að gera samninga við lágmark 4 aðila sem verða svokallaðir aðalmiðlarar.
Undirritun samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði
| Source: Ríkissjóður Íslands - Lánamál ríkisins