Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 7.maí sl. stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 11 0722 fyrir samanlagt 738 m.kr. og því nemur selt magn með uppgjöri 12. maí í flokknum RIKB 11 0722 alls 11.223 m.kr. að nafnvirði. Aðalmiðlarar nýttu sér kauprétt í RIKB 19 0226 fyrir samanlagt 411 m.kr. og því nemur selt magn með uppgjöri 12. maí í flokknum RIKB 19 0226 alls 11.521 m.kr. að nafnvirði