Niðurstaða útboðs verðtryggðra ríkisbréfa RIKS 21 0414


Útboð á verðtryggðum ríkisbréfum í flokki RIKS 21 0414 með tilboðsfyrirkomulagi
fór fram hjá lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að
bjóðendum buðust öll samþykkt tilboð á sama verði. Hæsta samþykkta
ávöxtunarkrafa ákvarðaði söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

Alls bárust 20 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.813 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 3.513 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,15 (3,78%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 25.
maí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 26. maí 2010.

Attachments

niurstour riks.21.mai.2010.pdf