Íslandsbanki lýsir því hér með yfir að bankinn skuldbindur sig til að setja daglega fram kauptilboð í viðskiptakerfi NASDAQ OMX að lágmarki 100 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum RIKH 18 1009. Ennfremur skuldbindur bankinn sig til að endurnýja tekin kauptilboð innan 15 mínútna. Í þeim tilfellum þar sem heildarfjárhæð viðskipta, innan dags, fer yfir 600 milljónir króna að nafnvirði, áskilur Íslandsbanki sér rétt til að hætta framsetningu tilboða til næsta viðskiptadags. Komi til þess að Íslandsbanki kjósi að segja upp viðskiptavakt þessari verður slíkt gert með að lágmarki eins mánaðar fyrirvara. Ákvörðun þessi er tekin einhliða af Íslandsbanka og er ekki byggð á samningi við Lánamál ríkisins eða nokkurn annan.