Vegna tilkynningar um samkomulag við kröfuhafa vill Eik fasteignafélag hf. taka fram að kröfuhafar sem samþykkt hafa fyrrgreint rammasamkomulag eru eigendur skuldabréfa sem skráð eru í Kauphöll Íslands, með einkennið EIK 05 1. Alls hafa samþykkt samkomulagið eigendur skuldabréfa sem fara með 86,5% af heildarfjárhæð krafna samkvæmt skuldabréfum með einkennið EIK 05 1. Samkomulagið er með fyrirvörum, eins og áður hefur komið fram, en gangi það eftir munu eigendur skuldabréfa, með einkennið EIK 05 1, eignast 75% hlutafjár í félaginu. Fyrrgreint samkomulag við kröfuhafa gildir til 1. september 2010 og stefna aðilar að því að ganga frá endanlegum samningi á grundvelli fyrrgreinds samkomulags fyrir þann tíma. Frekari upplýsingar veitir: Garðar Hannes Friðjónsson Forstjóri Sími 590-2200
Tilkynningar Eikar fasteignarfélags hf. vegna rammasamkomulags við kröfuhafa.
| Source: Eik fasteignafélag hf.