Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt leiðrétt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd og stöðu þjóðarbúsins 2009 og á fyrsta ársfjórðungi 2010. Bein fjárfesting erlendis var leiðrétt fyrir oftöldum skuldum við tengda aðila í árslok 2009 og fjárinnstreymi vegna þess á síðasta fjórðungi ársins 2009. Þá var endurfjárfestur hagnaður leiðréttur á árinu 2009. Endanlegar tölur um beina fjárfestingu 2009 er ekki að vænta fyrr en í september n.k. Sjá fréttatilkynninguna í heild sinni hér: www.sedlabanki.is
Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða leiðrétt 2009 og á fyrsta ársfjórðungi 2010
| Source: Seðlabanki Íslands