Leiðrétting - Árshlutareikningur fyrir janúar - mars 2010 - Frétt birt 2010-06-11 11:08:20


Leiðrétting: Rekstrarniðurstaða var ekki rétt tilgreind í fyrri
fréttatilkynningu. 

Óendurskoðaður árshlutareikningur A hluta Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið
janúar - mars 2010 var lagður fram í borgarráði 10. júní 2010. Til A hluta
telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um
er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og Eignasjóð.

Í fjárhagsáætlun fyrir tímabilið janúar - mars 2010 fyrir A hluta var gert ráð
fyrir því að niðurstaða fyrir fjármagnsliði yrði neikvæð um 520 milljónir króna
og rekstrarniðurstaða tímabilsins neikvæð um 80 milljónir króna.  Samkvæmt
árshlutareikningnum er niðurstaða A hluta fyrir fjármagnsliði neikvæð um 509
milljónir króna og rekstrarniðurstaða neikvæð um 88 milljónir króna.

Attachments

a hluti 31 03 2010.pdf