Í dag breytti alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investor Service horfum fyrir lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr stöðugum í neikvæðar. Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar hjá Moody's er nú Baa3 (negative outlook) og er hún í fjárfestingaflokki þrátt fyrir þessa breytingu á horfum. Fram kemur í fréttatilkynningu Moody's að breytingin endurspeglar samskonar breytingu sem fyrirtækið gerði á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins. Að mati Landsvirkjunar hefur breytingin engin áhrif á stöðu fyrirtækisins almennt né útistandandi skuldabréfaflokka.